Eurodesk á Íslandi hélt upp á 35 ára afmælisár sitt með sumargleði og fjölbreyttri dagskrá í Hinu Húsinu þann 5. júní síðastliðinn
Eurodesk á Íslandi hélt upp á 35 ára afmælisár sitt í Hinu Húsinu þann 5. júní síðastliðinn og þar tóku þátt á bilinu 70–80 ungmenni. Hópurinn sem þar var samankominn samanstóð bæði af ungmennum sem mæta reglulega í Hitt Húsið, ungu fólk sem var að kynna sér húsið í fyrsta skipti, sjálfboðaliðum sem eru á landinu á vegum European Solidarity Corps, jafningjafræðarar og ungt tónlistarfólk. 
SÍNE (Samtök íslenskra námsmanna erlendis) og AUS (Alþjóðleg ungmennaskipti) voru með bása og svöruðu spurningum þeirra sem höfðu áhuga á að fara út í nám eða sjálfboðaliðastörf, en Landskrifstofa Erasmus+ var einnig á staðnum fyrir þau sem vildu ræða tækifæri í Erasmus+ eða læra um Europass sem býður upp á ókeypis ferilskrá á netinu og vefgátt sem heldur utan um starfsferil fólks, en hægt er að þýða upplýsingarnar á ólík tungumál.
Einnig var hægt að ræða við sjálfboðaliða og kynnast því sem fer fram hjá vinnustofunni Ásgarði og í frístundastarfi í Sveitarfélaginu Árborg, en evrópskir sjálfboðaliðar koma þar við sögu í daglegu starfi.
Hljómsveitirnar Kyrsa og RAW stigu á svið undir lok afmælisins og sýndu kraftinn í ungu íslensku tónlistarfólki. Þá var boðið upp á hamborgara frá 2guys, bæði hefðbundna og vegan, sem og dýrindis afmælisköku og vegan-muffins.
Viðburðurinn var skipulagður af Eurodesk á Íslandi í samstarfi við Landskrifstofu Erasmus+, Europass, Hitt Húsið og Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS), og skapaðist þar frábær vettvangur fyrir tengslamyndun, fræðslu og gleði.
Afmælið var ekki aðeins tilefni til að fagna heldur einnig til að efla meðvitund um mikilvægi ungs fólks í samfélaginu og þau fjölmörgu tækifæri sem þeim standa til boða, sem og að undirstrika mikilvægi þess að ungt fólk nýti sér þau tækifæri sem standa til boða á vegum Evrópusambandsins til að öðlast alþjóðlega reynslu.