Upplýsingaveitan Eurodesk heldur upp á 35 ára afmæli sitt í ár
Eurodesk gegnir lykilhlutverki við að tengja ungt fólk í Evrópu við alþjóðleg tækifæri til náms, skiptináms, starfsnáms, styrkja og annarra verkefna. Slík tækifæri bjóðast ekki síst gegnum Erasmus+ og European Solidarity Corps áætlanir ESB, en Ísland tekur þátt í þeim á grundvelli EES samningsins.
Eurodesk tók fyrst til starfa árið 1990 í Skotlandi og í dag eru þátttökulöndin orðin 36. Í þeim starfa landstengiliðir ýmist beint með ungu fólki eða með æskulýðsstarfsfólki hjá samtökum eða stofnunum sem sinna hlutverki samstarfsaðila (e. Multipliers). Í dag hefur Eurodesk fleiri en 1000 samstarfsaðila um alla Evrópu sem vinna með ungu fólki í daglegu starfi en fá stuðning frá landstengiliðunum og skrifstofu Eurodesk í Brussel til að veita ungu fólki upplýsingar um tækifærin sem þeim standa til boða á sem aðgengilegastan hátt.
Fyrsti vottaði samstarfsaðili Eurodesk á Íslandi er Hitt Húsið, en það þykir vel til þess fallið að miðla tækifærum erlendis til ungs fólks, enda getur ungt fólk farið þangað til að fá atvinnuráðgjöf og ýmsa aðra þjónustu sér að kostnaðarlausu. Skemmtilegt er frá því að segja að fyrst þegar Eurodesk tók til starfa á Íslandi árið 1996 var það einmitt hýst hjá Hinu Húsinu sem þá var í miðbæ Reykjavíkur.
Ókeypis þjónusta Eurodesk
Eurodesk á Íslandi er fjármögnuð af Erasmus+ og hýst hjá Rannís. Starfsfólk Eurodesk hjá Rannís sinnir bæði hlutverki upplýsingaveitu til ungs fólks, til dæmis með kynningum í framhaldsskólum og á samfélagsmiðlum, og hlutverki stuðningsaðila við æskulýðsvettvanginn. Ungt fólk getur leitað til Eurodesk sér að kostnaðarlausu með spurningar sem tengjast tækifærum erlendis.
Í meira en þrjá áratugi hefur hlutverk Eurodesk verið að efla ungt fólk með því að veita því aðgengilegar upplýsingar um alþjóðleg tækifæri og hvetja þau til virkrar lýðræðislegrar þátttöku. 35 ára afmælið er kjörið tækifæri til að fagna árangri Eurodesk á Íslandi með ýmsum skemmtilegum viðburðum. Má þar nefna:
- verðlaunaathöfn fyrir vottaða samstarfsaðila fyrir fyrirmyndarverkefni
- fjölþjóðleg matreiðslukvöld
- nýja vefsíðu
- útgáfu niðurstöður víðtækrar könnunar um hagi ungs fólks í Evrópu
- afmælisfögnuð Eurodesk í Brussel
- sérstakt samstarf við önnur stoðverkefni Erasmus+ í tilefni af afmælisárinu
Hægt er að fylgja Eurodesk á Instagram @eurodeskiceland og fylgjast þannig með starfseminni og viðburðum afmælisársins