Í tilefni af evrópsku ungmennavikunni býður Eurodesk á Íslandi á stutta vefstofu þar sem inngildingarfulltrúi Landskrifstofu Erasmus+ mun fara yfir nokkrar leiðir til að vinna með fólki með ólíkan trúarbakgrunn í gegnum hugtakið „þvertrúarlegt samtal“ (e. interfaith dialogues).
Á vefstofunni verður farið yfir hvað slíkt samtal felur í sér, hvaða áhrif það hefur á inngildingu ungs fólks með fjölbreyttan bakgrunn og hvernig Erasmus+ getur nýst sem verkfæri til að stuðla að slíku samtali.
Vefstofan er byggð á þekkingu sem inngildingarfulltrúi Landskrifstofu Erasmus+ aflaði sér á sérstöku Erasmus+ námskeiði um þvertrúarlegt samtal í Sarajevo í október 2025.
Vefstofan hentar öllum sem starfa með ungu fólki og eru í Erasmus+ og European Solidarity Corps verkefnum eða gætu haft áhuga á þeim, eða hafa áhuga á málefninu yfirhöfuð.
Hvenær: 28. apríl, kl. 14:00 - 15:00
Hvar: Á Teams
Microsoft Teams meeting
Join: https://teams.microsoft.com/meet/380915098843218?p=RUVdqRotkTaD8Anmk6 Meeting ID: 380 915 098 843 218
Passcode: eL3gf3oJ
Skráning: Vefstofa - Að vinna með ólík trúarbrögð (e. interfaith dialogues)

