DiscoverEU opið á ný

[addtoany]

08 April 2026

Í dag, þann 8. apríl kl. 10 opnaði fyrir umsóknir í ferðahappdrætti Erasmus+ sem nefnist DiscoverEU. Þar gefst 18 ára ungmennum kostur á að vinna Interrail lestarpassa til að ferðast um Evrópu auk flugs til og frá meginlandinu.

Flugbókanir til og frá Íslandi eru í umsjá ferðaskrifstofu sem hefur samband við þátttakendur vegna bókana. Þátttakendur skipuleggja hins vegar ferðalagið sjálfir, þar á meðal leiðir og gistingu.

Umsóknarferlið

Til þess að taka þátt í happdrættinu þarf að svara fimm spurningum. Fjöldi réttra svara hefur áhrif á líkur á vinningi.

  • Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2026 kl. 10:00 (íslenskur tími)
  • Þátttökurétt eiga þau sem eru fædd á tímabilinu 1. júlí 2007 til 30. júní 2008
  • Allt ungt fólk með lögheimili á Íslandi getur tekið þátt, óháð þjóðerni

Að þessu sinni falla 58 lestarpassar í hlut ungmenna frá Íslandi, sem þýðir að líkur á vinningi eru góðar.

Ferðalag og fyrirkomulag

Lestarpassinn gildir í allt að 30 daga, þar sem hægt er að nýta að hámarki sjö daga til ferðalaga milli áfangastaða. Þátttakendur hafa þannig svigrúm til að skipuleggja ferðalag sitt sjálfir og velja hvaða lönd og staði þeir heimsækja.

Ferðatímabilið í þessari umsóknarlotu er frá 1. júlí 2026 til 30. september 2027

Reynslusögur og fyrri þátttakendur

Frá því Ísland hóf þátttöku í DiscoverEU árið 2022 hafa um 100 ungmenni á ári nýtt sér þetta tækifæri. Reynslusögur sýna að þátttakan veitir dýrmæta reynslu, eykur sjálfstæði og veitir innsýn í menningu og samfélag annarra Evrópulanda.

Lesa má reynslusögu þátttakanda hér: https://youth.europa.eu/stories/recipe-unforgettable-adventure_en

Nánari upplýsingar

Markmið DiscoverEU er að opna Evrópu fyrir 18 ára ungmennum og veita þeim tækifæri til að kynnast menningararfi, sögu og fjölbreytileika álfunnar. Verkefnið er hluti af Erasmus+ áætluninni og er auglýst af Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi.

Nánari upplýsingar um DiscoverEU og þátttaka í happdrættingu fara fram í gegnum evrópsku ungmennagáttina: https://youth.europa.eu/discovereu/

[printfriendly]

Stay updated.

Subscribe to the monthly Eurodesk newsletter. Read past issues here.

ÚTGEFANDI

Eurodesk á Íslandi 
Borgartún 30, 105 Reykjavík
+ 354 515 5800
Iceland
eurodeskis@eurodesk.eu

Gerð þessarar vefsíðu var styrkt með fjármagni frá framkvæmdastjórn ESB. Eurodesk.is endurspeglar einungis viðhorf höfundar (Eurodesk). Framkvæmdastjórnin ber ekki ábyrgð á neinni notkun þeirra upplýsinga sem hér finnast. 

© Eurodesk, 2020. Eurodesk is a registered trademark of Eurodesk Brussels Link.