35 ára afmæli Eurodesk

19 June 2025

Eurodesk á Íslandi hélt upp á 35 ára afmælisár sitt með sumargleði og fjölbreyttri dagskrá í Hinu Húsinu þann 5. júní síðastliðinn

(in English)

Íslenska: Afmælisterta og bollakökur skreyttar fánum Evrópuríkja á veisluborði Eurodesk. English: Anniversary cake and cupcakes decorated with European flags on the Eurodesk party table.Eurodesk á Íslandi hélt upp á 35 ára afmælisár sitt í Hinu Húsinu þann 5. júní síðastliðinn og þar tóku þátt á bilinu 70–80 ungmenni. Hópurinn sem þar var samankominn samanstóð bæði af ungmennum sem mæta reglulega í Hitt Húsið, ungu fólk sem var að kynna sér húsið í fyrsta skipti, sjálfboðaliðum sem eru á landinu á vegum European Solidarity Corps, jafningjafræðarar og ungt tónlistarfólk. Íslenska: Hópur ungmenna spjallar saman í anddyri Hins hússins í afslöppuðu andrúmslofti. English: A group of young people chat informally in the lobby of Hitt Húsið.

SÍNE (Samtök íslenskra námsmanna erlendis) og AUS (Alþjóðleg ungmennaskipti) voru með bása og svöruðu spurningum þeirra sem höfðu áhuga á að fara út í nám eða sjálfboðaliðastörf, en Landskrifstofa Erasmus+ var einnig á staðnum fyrir þau sem vildu ræða tækifæri í Erasmus+ eða læra um Europass sem býður upp á ókeypis ferilskrá á netinu og vefgátt sem heldur utan um starfsferil fólks, en hægt er að þýða upplýsingarnar á ólík tungumál.

Einnig var hægt að ræða við sjálfboðaliða og kynnast því sem fer fram hjá vinnustofunni Ásgarði og í frístundastarfi í Sveitarfélaginu Árborg, en evrópskir sjálfboðaliðar koma þar við sögu í daglegu starfi.

Hljómsveitirnar Kyrsa og RAW stigu á svið undir lok afmælisins og sýndu kraftinn í ungu íslensku tónlistarfólki. Þá var boðið upp á hamborgara frá 2guys, bæði hefðbundna og vegan, sem og dýrindis afmælisköku og vegan-muffins.

Viðburðurinn var skipulagður af Eurodesk á Íslandi í samstarfi við Landskrifstofu Erasmus+, Europass, Hitt Húsið og Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS), og skapaðist þar frábær vettvangur fyrir tengslamyndun, fræðslu og gleði.

Afmælið var ekki aðeins tilefni til að fagna heldur einnig til að efla meðvitund um mikilvægi ungs fólks í samfélaginu og þau fjölmörgu tækifæri sem þeim standa til boða, sem og að undirstrika mikilvægi þess að ungt fólk nýti sér þau tækifæri sem standa til boða á vegum Evrópusambandsins til að öðlast alþjóðlega reynslu.

Íslenska: Tvær ungar konur ræða saman við listaverk á sýningu í Hinu Húsinu með Eurodesk veggspjaldi í forgrunni. English: Two young women talk in front of an artwork at an exhibition in Hitt Húsið, with a Eurodesk banner in the foreground. Íslenska: Hópur ungmenna skoðar sýningu á listaverkum og skapandi verkefnum ungs fólks. English: A group of youth observe an exhibition of creative works and youth-made art projects. Íslenska: Hljómsveitin RAW flytur tónlistaratriði á sviði í Hinu Húsinu á Eurodesk afmælinu. English: The band RAW performs live on stage at Hitt Húsið during the Eurodesk anniversary event. Íslenska: Ungmenni taka þátt í landakortsleik á gólfi, hlæja og skoða spjöld með upplýsingum um Evrópu. English: Young people take part in a European map floor game, laughing and reading info cards. Íslenska: Fjórir unglingar spila minnisspil með Eurodesk-myndum á borði. English: Four teens play a memory game with Eurodesk-themed cards on a coffee table. Íslenska: Hópur ungmenna situr í hring og hlustar á kynningu í umræðusal Hins hússins. English: A group of young people sit in a circle and listen to a presentation at Hitt Húsið discussion space. Íslenska: Ungmenni stilla sér upp fyrir myndatöku í ljósmyndabása á afmælishátíð Eurodesk. Þau halda á skiltum með ártölum og hlæja saman. English: Young people pose for a photo booth picture at the Eurodesk anniversary celebration, holding year signs and laughing together. Íslenska: Hljómsveitin Kyrsa flytur tónlist á sviði með blöðrum sem mynda töluna 35 í forgrunni. English: The band Kyrsa performs live on stage with large number "35" balloons marking the celebration.

Íslenska: Ungt fólk spilar memory-spil við gluggann í Hinu Húsinu á Eurodesk afmælishátíð, hlæjandi og í góðum félagsskap. English: Young people play a memory card game by the window at the Eurodesk anniversary event, laughing and enjoying each other's company.Tveir ungir menn stilla sér upp fyrir myndavél í ljósmyndahorni afmælishátíðar Eurodesk, með skrautspjöldum og bros á vör. English: Two young men pose enthusiastically for the camera at the Eurodesk anniversary photo booth, holding props and smiling.

Stay updated.

Subscribe to the monthly Eurodesk newsletter. Read past issues here.

ÚTGEFANDI

Eurodesk á Íslandi 
Borgartún 30, 105 Reykjavík
+ 354 515 5800
Iceland
eurodeskis@eurodesk.eu

Gerð þessarar vefsíðu var styrkt með fjármagni frá framkvæmdastjórn ESB. Eurodesk.is endurspeglar einungis viðhorf höfundar (Eurodesk). Framkvæmdastjórnin ber ekki ábyrgð á neinni notkun þeirra upplýsinga sem hér finnast. 

© Eurodesk, 2020. Eurodesk is a registered trademark of Eurodesk Brussels Link.