Jafningjafræðsla eflir ungt flóttafólk

16 May 2022

Maí er mánuður helgaður fjölbreytileikanum í Evrópu. Því er tilvalið að nýta tækifærið og varpa ljósi á framúrskarandi Evrópuverkefni sem fór fram hér á Íslandi á vormánuðunum. Verkefnið fól í sér að skapa tengsl milli ungra Íslendinga og ungs fólks sem komið hafa til Íslands sem flóttafólk á síðustu misserum. Unga fólkið sem hópurinn hitti voru á aldrinum 14-20 ára og voru þau frá löndum eins og Afganistan, Palestínu, Íran og Venesúela.

Hópur jafningjafræðara Hins Hússins sóttu síðasta haust fyrir samfélagsstyrk frá sjálfboðaáætlun Evrópusambandsins, European Solidarity Corps. Samfélagsstyrkir eru styrkir fyrir innanlandsverkefnum og er hægt að lesa nánar um þá hér [setja inn link].

Markmið verkefnisins var að skapa vettvang þar sem fjölbreyttur hópur ungmenna gat komið saman og rætt upplifun sína á því að vera ung manneskja í dag. Á daginn kom að þrátt fyrir ólíkan bakgrunn átti unga fólkið margt sameiginlegt, en með tilkomu samfélagsmiðla hefur sjaldan verið jafn auðvelt fyrir ungt fólk af ólíkum uppruna að finna sameiginlega snertifleti og nú og jafnvel að nýta sér upplýsingatækni til tjáskipta, þvert á tungumál.

Búin var til dagskrá fyrir unga fólkið þar sem áhugaverðir staðir í miðbæ Reykjavíkur voru skoðaðir. Tilgangurinn var að skoða skemmtilega og nytsamlega staði fyrir ungt fólk á Íslandi. Til að byrja með hittist hópurinn á Klambratúni þar sem farið var í hópeflisleiki og svo var haldið niður í bæ með viðkomu á Hlemmi þar sem unga fólkið fékk upplýsingar um helstu samgönguleiðir.

Í miðbænum gafst ekki einungis tími til að skoða skemmtilega staði, heldur einnig að spjalla saman og deila reynslu. European Solidarity Corps styrkurinn nýttist einnig til að veita unga fólkinu aðgang að norðurljósasýningu og íshelli í Perlunni ásamt ís frá Valdísi, enda tilgangurinn bæði að kynna þau fyrir landinu sem og íslenskri ungmennamenningu.

Jafningjafræðararnir sem unnu verkefnið eru 7 talsins og eru á aldrinum 18-20 ára. Þau sátu nokkur undirbúningsnámsskeið, m.a. til að læra meira um aðstæður flóttafólks hér á landi og til að sjá á hvaða sviðum helst þurfi að veita stuðning.

Eurodesk á Íslandi kom að undirbúningsfræðslu jafningjafræðarana en þau fengu einnig fræðslu frá verkefnunum Sprettur, Velkomin í hverfið, Mannflóran og Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Verkefnið skapaði tækifæri fyrir þessa nýju íbúa Íslands til að læra um daglegt líf ungs fólks í sínu nýja landi. Það veitti einnig ungu jafningjafræðurunum innsýn og aukna þekkingu á aðstæðum ungs flóttafólks og hvernig jafningjafræðsla getur komið til móts við þarfir þeirra. Það er von jafningjafræðarana að endurtaka verkefnið árlega því mikil ánægja var með framtakið hjá hópnum sem þau hittu.

Print Friendly, PDF & Email

Stay updated.

Subscribe to the monthly Eurodesk newsletter. Read past issues here.

ÚTGEFANDI

Eurodesk á Íslandi 
Borgartún 30, 105 Reykjavík
+ 354 515 5800
Iceland
eurodeskis@eurodesk.eu

Gerð þessarar vefsíðu var styrkt með fjármagni frá framkvæmdastjórn ESB. Eurodesk.is endurspeglar einungis viðhorf höfundar (Eurodesk). Framkvæmdastjórnin ber ekki ábyrgð á neinni notkun þeirra upplýsinga sem hér finnast. 

© Eurodesk, 2020. Eurodesk is a registered trademark of Eurodesk Brussels Link.