Taktu þátt í Eurodesk könnuninni og deildu þinni reynslu
Eurodesk er upplýsingaveita um þau tækifæri sem ungt fólk hefur til að fara til Evrópu í nám, sjálfboðaliðastörf, þjálfun og vinnu. Þar sem markmið Eurodesk er að veita ungu fólki og æskulýðsstarfsfólki ókeypis stuðning og gæða upplýsingar um þessi tækifæri viljum við skilja betur hvar áhugi ungs fólks liggur og hvernig er best að miðla þessum upplýsingum.
Við spyrjum því:
- Hvað finnst þér um að fara til útlanda eftir heimsfaraldurinn?
- Hvers konar tækifæri finnst þér mest spennandi?
- Hvers konar upplýsingar fyndist þér vera gagnlegar?
- Hvaða upplýsingaveitur notar þú?
Könnunin tekur u.þ.b. 10 mínútur og er í boði á eftirfarandi tungumálum:
búlgörsku, dönsku, ensku, frönsku, grísku, hollensku, íslensku, ítölsku, króatísku, lettnesku, lithénsku, pólsku, rúmensku, slóvensku, spænsku, tékknesku, tyrknesku, úkraínsku og þýsku.
Ef þú ert á aldrinum 13-35 ára þá hvetjum við þig til að fylla út könnunina. Með því að svara henni geturðu deilt þínum skoðunum um þessi tækifæri og hvar þér finnst best að nálgast upplýsingar um þau. Hvort sem þú hefur farið til útlanda eða ekki, þá myndum við gjarnan vilja heyra frá þér.
Verðlaun í boði
Þau sem klára könnunina geta kosið að fara í útdrátt um að vinna Polaroid myndavél (3 í boði)
Til að taka þátt...
- Verður að svara allri könnuninni
- Verður að samþykkja að vera í leiknum
Einungis er hægt að senda inn eitt innlegg frá hverjum þátttakanda.